SEL by ÓX × ION Adventure
Fimm rétta smakkseðill | Vínpörun | Fordrykkur | Gisting | Heitur pottur | Morgunverður
Laugardaginn 21. nóvember tekur SEL by ÓX yfir Glerskálann á ION Adventure í einstöku pop-up kvöldi þar sem framúrskarandi matargerð, sérvalin vín, íslensk náttúra og notaleg gisting mætast.
Á bak við SEL by ÓX stendur Þráinn Freyr Vigfússon, yfirkokkur og maðurinn á bak við Michelin-stjörnuveitingastaðinn ÓX. Matargerðin byggir á árstíðabundnu íslensku hráefni, franskri matreiðslutækni og mildum asískum áhrifum – með einfaldleika og vandað handverk að leiðarljósi.
Kvöldið hefst með fimm rétta smakkseðli SEL by ÓX ásamt vínpörun í Glerskálanum, þar sem víðáttan og íslensk náttúra skapa einstaka umgjörð um kvöldið.
Að máltíð lokinni tekur við notaleg gisting á ION Adventure. Njóttu kyrrðarinnar, slakaðu á í einstaka heita pottinum undir berum himni, njóttu á Norðurljósabarnum og byrjaðu næsta dag rólega með góðum morgunverði.
Aðeins þetta eina kvöld – laugardaginn 21. nóvember á ION Adventure.
Innifalið í verði fyrir tvo saman í herbergi:
- Fimm rétta smakkseðill ásamt vínpörun- Sel by ÓX
- Gisting
- Aðgangur að heita pottinum og saunu
- Morgunverður
Gestir eru velkomnir að innrita sig frá kl 16. Útritun er kl 12 eða fyrr - daginn eftir.
Glerskálinn
Glerskálinn er einstök viðbygging við ION Adventure þar sem glæsileg hönnun og stórbrotið útsýni yfir landslagið skapa einstaka umgjörð. Að degi til flæðir náttúrulegt ljós inn um glerið en þegar rökkrið færist yfir tekur við hlý og notaleg stemning – fullkominn viðburður áður en aðventan gengur í garð.
Fyrir fyrirtækja- og hópabókanir, vinsamlegast hafið samband við sales@ioniceland.is.











