
Bríet í Glerskálanum á ION Adventure - Matur, tónleikar og gisting. Gildir fyrir tvo.
✨ Bríet | Matur, gisting & fordrykkur | Spa ✨
Eigðu einstaka kvöldstund með Bríeti, á ION Adventure á Nesjavöllum, þar sem hún leikur uppáhalds lög okkar allra ásamt nýju efni. Með henni í för verða þeir Bergur Einar á trommum og Daníel Friðrik á Gítar.
Innifalið í miðaverði - Gildir fyrir tvo:
- Fordrykkur
- Kvöldverður & gisting
- Tónleikar með Bríeti
- Morgunverður daginn eftir
- Aðgangur að spa & einstökum heitum potti
Dagskrá:
- Gestir eru velkomnir að innrita sig eftir kl 16
- Kvöldverður um kl 19
- Tónleikar hefjast um 21/21:30
- Morgunverður daginn eftir frá kl 7
- Útritun kl 12
- Mælum eindregið með að gestir finni sér svo tíma til að njóta í heita pottinum.
Ekki missa af þessum glæsilega viðburði – frábær leið til þess að eiga góða stund áður en annríki desember mánaðar hefst.
Tryggðu þér miða núna – og leyfðu þér að hlakka til.
Glerskálinn:
Er glæsileg og ný viðbygging við ION Adventure á Nesjavöllum. Með glæsilegri glerhönnun og stórbrotnu útsýni sameinar Glerskálinn einstaka fegurð náttúrunnar og fágaðan elegans – fullkominn staður fyrir öll tilefni. Að degi til fyllist salurinn af náttúrulegu ljósi, en þegar kvöldið fellur tekur við töfrandi stemning sem skapar óviðjafnanlega upplifun.
Fyrir fyrirtækja- eða hópabókun er einnig haft að hafa samband við sales@ioniceland.is














