ION Golf x Seinni níu - Kiðjaberg, Öndverðarnes, matur, skemmtun og gisting
Golfmót með Seinni Níu | Matur, skemmtun & gisting | Spa | 3. - 4. júní
ION hótel ásamt Seinni Níu bjóða upp á glæsilegan golfviðburð dagana 3.–4. júní nk.
Innifalið í verði – gildir fyrir tvo í herbergi:
- Þátttaka í golfmóti á tveimur frábærum völlum (Kiðjaberg og Öndverðarnes)
- Fordrykkur
- Kvöldverður og gisting á ION Adventure Hotel
- Kvöldskemmtun með Seinni Níu – Logi Bergmann og Jón Júlíus
- Morgunverður daginn eftir
- Aðgangur að spa og heitum potti
- Vinningar í boði
Fyrirkomulag:
Spilað er í paramóti („betri bolti“) – skemmtilegt og aðgengilegt fyrir alla. Ræst verður á sama tíma á öllum teigum.
Dagskrá (með fyrirvara um breytingar):
3. júní
- Fyrri hringur spilaður á Kiðjaberg golfvelli - ræst um kl 11
- Að loknum leik er haldið á ION Adventure þar sem innritun hefst
- Mælt er með að slaka á í spa-inu og heita pottinum
- Fordrykkur og kvöldverður í glerskála hótelsins
- Logi og Jón Júlíus sjá um létta og skemmtilega kvöldstund
4. júní
- Morgunverður
- Útritun
- Seinni hringur spilaður á Öndverðarnes golfvelli
Frábærir vinningar í boði - & takmarkað pláss!
Fyrir hópa og fyrirtæki: sales@ioniceland.is