
Nærandi æfingaferð með Indíönu á ION
Indíana Nanna einka- og hópþjálfari og stofnandi GoMove Iceland verður með þjálfun og fræðslu fyrir konur á öllum aldri á Ion Adventure um leið og ástandið lagast (stefnt er að 6. desember). Í boði verða fjölbreyttar æfingar ásamt teygjum á kvöldin, göngutúr um Nesjavelli, slökun í heitri laug og fyrirlestur og umræður um mataræði og svefn. Innifalið eru eru 2 nætur, morgunmatur, hádegismatur og kvöldmatur. Áhersla verður á næringarríka og orkumikla fæðu!
Ferðin er hugsuð fyrir byrjendur sem og lengra komna, æfingarnar verða sniðnar að getu hvers og eins og hentar því öllum.
Við hvetjum gesti til að taka með sér sína eigin dýnu en einnig verða dýnur á svæðinu. Við pössum að sjálfsögðu vel upp á allar sóttvarnarreglur og biðjum gesti um að virða fjarlægðartakmörk. Ekki hika við að hafa samband ef einhverjar spurningar vakna varðandi viðburðinn - rosa@ioniceland.is
Dagskrá:
Sunnudagur
12:00 Gestir eru boðnir velkomnir á ION Adventure Hotel
12:30 Hádegismatur
14:00 Gönguferð með Hörpu Pétursdóttur sem tekur um 1 klst.
15:30 Innritun í herbergi
16:30 Æfing: Hópur 1 17:30 Æfing: Hópur 2
19:15 Kvöldverður
20:30 Kvöldteygjur og slökun: Hópur 1
21:15 Kvöldteygjur og slökun: Hópur 2
Mánudagur
08:00 – 11:00 Morgunmatur
08:15 Æfing: Hópur 2
09:15 Æfing: Hópur 1
12:30 Hádegismatur
15:00 Fyrirlestur og umræður um mataræði og svefn.
16:30 Æfing: Hópur 2
17:30 Æfing: Hópur 1
19:15 Kvöldverður
20:30 Kvöldteygjur og slökun: Hópur 2
21:15 Kvöldteygjur og slökun: Hópur 1
Þriðjudagur
08:00 – 11:00 Morgunmatur
08:15 Æfing: Hópur 1
09:15 Æfing: Hópur 2
Dagskrárlok